16.1.2007 | 10:31
Þetta er alvöru bónus
Jæja, þá eru Íslendingar byrjaðir að greiða bónus fyrir unninn störf samanber USA. Þegar ég bjó úti var þetta alvanalegt að menn fengu borgaðan bónus fyrir vel unninn störf en það var alla veganna gefið upp til skatts og greiddu menn af því sína skattprósentu. Finnst reyndar allt í lagi að vinnuveitendur( þ.e. við þjóðin) vissu af þessu. Bara svo að ég spyrji get ég fengið svona vinnu þar sem að ég get látið frjáls framlög renna beint í mínar skuldir, yrði ekki lengi að greiða niður skuldirnar mínar og jafnvel safnað fyrir utanlandsferð fyrir fjölskylduna og keypt mér hús á Spáni og þegar mig vantaði pening yrði að sjálfsögðu fengið landslið skemmtikrafta til að setja af stað símasöfnun helst í sjónvarpinu. Bíð eftir svari um starfslokasamning líka.
Þvílík og önnur eins spilling hefur ekki sést síðan í Suður Ameríku þar sem sama fyrirkomulag er á greiðslum, þ.e. menn taka það sem að þeir geta til einkanota.
Innlegg úr söfnun fóru jafnóðum inn á persónulegan bankareikning forstöðumanns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.